Aseba á Íslandi sf

http://www.aseba.net/

Tilgangur félagsins er að vera umboðsaðili og tengiliður ASEBA spurningalistakerfisins á Íslandi. Félagið annast þýðingar og umsjón með útgáfu spurningalistanna og milligöngu um dreifingu þeirra og tilheyrandi hugbúnaðar. Tilgangur félagsins er að koma fram fyrir hönd ASEBA, á Íslandi og annast fræðslu og samningagerð við aðra aðila varðandi notkun, sölu, dreifingu og rannsóknir á eða með ASEBA kerfinu. Tilgangur félagsins er jafnframt að beita sér fyrir rannsóknum og þróunarstarfi t.d. með stofnun rannsóknarsjóða eða þátttöku í þeim.

Efni

Hvað er ASEBA?

ASEBA® mælitækin setja alþjóðlegan staðal fyrir upplýsingaöflun frá mörgum ólíkum aðilum við mat á börnum og fullorðnum. Stuðst er við mikið magn nýrra gagna við þróun viðmiða og yfir 5000 rannsókna frá 50 löndum. ASEBA mælitækin eru gjarnan notuð í ólíku samhengi þ.m.t. skólum, geðheilbrigðisþjónustu, heilbrigðisþjónustu, rannsóknum og rannsóknarviðtölum, meðferðarvinnu, þjálfun, lýðheilsuathugunum, barna- og fjölskylduþjónustu og í rannsóknarskyni.

ASEBA stendur fyrir Achenbach System of Empirically Based Assessment. Frumkvöðull og hönnuður kerfisins er Thomas M. Achenbach D.ph.

Forsaga
Upphaf ASEBA aðferðarinnar má rekja til í kringum 1960 er Dr. Achenbach hóf þróun mælitækja sem gæfu fjölbreyttari mynd af sálsýki barna og fullorðinna en hefðbundin sjúkdómsgreiningarkerfi buðu upp á. Á þeim tíma hafði American Psychiatric Association’s Diagnostic & Statistical Manual (DSM)  aðeins tvo flokka fyrir geðræna kvilla barna.. Það voru  Adjustment Reaction of Childhood and Schizophrenic Reaction, Childhood Type.

Aðferð ASEBA :

(1) mæling vanda samkvæmt stóru úrtaki barna, unglinga og fullorðinna.

(2) framkvæma margbreytilega tölfræðilega úrvinnslu af tengslum milli vanda til að bera kennsl á einkennamynstur vanda sem koma fram saman

(3) nota frásögn og upplýsingar um leikni og þátttöku í ýmsum athöfnum, félagsleg tengsl, skóla og vinnu til að meta færni og aðlögun;

(4) smíða myndir af kvörðum sem sýna skor einstaklings út frá viðmiðum fyrir aldur þeirra og kyn.
 

Fyrsta vísindalega skýrslan um ASEBA rannsókn var kynnt í Society for Research in Child Development (Achenbach, 1965), og fyrsta vísindalega útgáfan var  grein í  American Psychological Association’s Psychological Monographs series (Achenbach, 1966).

Lýsing á notkunarskilyrðum ASEBA

 

Upp aftur

Vinstri hlið

Leturstærðir

Upp aftur

Námskeið - notkun ASEBA

Námskeið um ASEBA matstækin, notkun þeirra og helstu nýjungar og breytingar.

Skráning á netfangi halldor@bjarkir.net eða aseba@aseba.net 

Póstlisti




Öryggiskóði

Upp aftur